Andreas Aðalsteinsson hjá auglýsingastofunni Sahara veit sannarlega eitt og annað um markaðssetningu, ekki síst þegar kemur að samfélagsmiðlum. Hann fer yfir það sem virkar í dag: hvað grípur athygli, hvað skapar tengingu og hvað hjálpar vörumerkjum að vaxa.
Umræðuefni þáttarins eru meðal annars:
Er „branding vs. sala“ röng spurning?
Af hverju segir fylgjendatala ekki alla söguna?
Hvaða íslensku áhrifavaldar standa sig best?
Hvernig nær maður athygli fólks á fyrstu 3 sekúndunum?
Hvað gerir content áhrifaríkt?
Skiptir rétta tilfinningin meira máli en „súpa dagsins“?
Andreas hjálpar okkur að setja hlutina í samhengi þegar kemur að skilaboðum, samfélagsmiðlum, auglýsingum og vexti.
Þetta er þáttur fyrir frumkvöðla, fyrirtækjaeigendur, markaðsfólk og alla sem hafa einhvern tímann hugsað:
„Við þurfum að vera virkari á samfélagsmiðlum… en hvað eigum við eiginlega að gera?“
--
💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.
💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Margrét Björk Jónsdóttir. Innehållet i podden är skapat av Margrét Björk Jónsdóttir och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.