Vörumerki
Avsnitt

S2E12 | Það sem virkaði fyrir 5 árum virkar ekki lengur

Dela

Margrét og Arna setjast niður í lokaþætti seríu 2 og horfa bæði til baka og fram á við.

Markaðsheimurinn hefur breyst hratt- og aðferðir sem virkuðu fyrir nokkrum árum geta í dag jafnvel haft öfug áhrif. Við ræðum hvað er að breytast í markaðsmálum, hvernig gervigreind hefur áhrif á vörumerki og hvers vegna raunverulegt, persónulegt efni verður sífellt verðmætara.

Við förum líka yfir áhrifavalda og PR-pakka, hvernig fyrirtæki geta valið rétta miðla og hvers vegna það skiptir meira máli að skilja markhópinn og markmiðið en að reyna að vera alls staðar.

Að lokum færum við umræðuna yfir á okkar eigin verkefni, óttann við að byrja áður en allt er tilbúið og stærsta lærdóminn sem hefur fylgt okkur í gegnum alla seríuna: stundum þarftu einfaldlega að byrja- og sjá hvert það leiðir þig. --

💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson

📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Margrét Björk Jónsdóttir. Innehållet i podden är skapat av Margrét Björk Jónsdóttir och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.