Vörumerki
Avsnitt

09 | Baldvina Snælaugsdóttir – Sagan hennar mömmu

Dela

Í þessum þætti sest ég niður með mömmu minni, Baldvinu Snælaugsdóttur (Baddý). Upphaflega átti þátturinn að snúast um rúmlega 25 ára feril hennar í markaðsmálum, eftirminnilegar herferðir og lífið í bransanum. En úr varð djúpt og persónulegt samtal um það þegar lífið fór á hvolf á einni nóttu, eftir að hún veiktist alvarlega í kjölfar heilaskurðaðgerðar fyrir nokkrum vikum.

Við ræðum örvæntinguna á spítalanum, bataferlið og hvernig hugsanir og baráttustraumar fólksins hennar skiluðu sér á ögurstundu þegar mest á reyndi. Hún segir einnig frá því hvernig hún hafði fundið þetta á sér og gert ráðstafanir í vinnunni, meðal annars með því að stíga til hliðar og ráða eftirmann sinn sem markaðsstjóra Kringlunnar aðeins nokkrum dögum áður en hún fór í aðgerðina.

❤️ Mamma hefur alltaf verið mín fyrirmynd, en aldrei meira en einmitt núna. Þetta er sagan hennar, og sagan okkar beggja.

Þátturinn markar lok fyrstu seríu Vörumerkisins. Í næstu seríu hefst nýr kafli þar sem þið fáið að fylgjast enn meira með mínu ferli við að byggja upp eigið vörumerki, Avelin Rae.  ----

✨ Þessi þáttur er í boði 👟 Skór.is  & Alfreð: Kynntu þér Hæfnileitina! ♡  Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói. 📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Margrét Björk Jónsdóttir. Innehållet i podden är skapat av Margrét Björk Jónsdóttir och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.