Réttarmeinafræðingurinn Pétur Guðmannsson hefur um árabil verið eini réttarlæknir landsins í fullu starfi.
Í þætti vikunnar köfum við dýpra í eitt sérstæðasta starf landsins og spyrjum stóru spurningarinnar: hvernig er að vinna við það að kryfja lík?
Spjallið leiðir okkur víða. Við ræðum meðal annars hvernig dánartími er metinn, hvað gerist í líkamanum þegar við tökum okkar hinsta andardrátt, nálykt, samstarf við lögreglu, rannsóknarskýrslur og þau óútskýrðu dauðsföll sem koma upp á Íslandi.
Samstarfsaðilar þáttarins: 🔍Alfreð -⚕️Sjúkraliðafélag Íslands - 🎓Endurmenntun HÍ ---
🎵Elephant - Tame Impala 🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Stéttarfélagið. Innehållet i podden är skapat av Stéttarfélagið och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.