Fangavörðurinn Heiðar Smith fór yfir stöðuna í fangelsismálum á Íslandi, starf fangavarða og hið daglega líf innan veggja fangelsanna. Heiðar starfar í fangelsinu á Hólmsheiði og er jafnframt formaður Félags fangavarða.
Í spjallinu var farið yfir þær fjölmörgu áskoranir sem fangelsisyfirvöld standa frammi fyrir í nútímasamfélagi. Að vanda var farið um víðan völl og einnig komið inn á stigskiptingu afplánunar, félagsstarf fanga, samneyti fanga og fangavarða, Fangavarðaskólann, Stóra-Hraun og margt fleira sem mótar fangelsiskerfið á Íslandi í dag.
Stéttir Landsins fagnar eins árs afmæli og er einstaklega viðeigandi að halda upp á það með því að gægjast inn fyrir dyr fangelsanna á Íslandi.
Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷 @heidarsmith 🎵Elephant - Tame Impala 🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Stéttarfélagið. Innehållet i podden är skapat av Stéttarfélagið och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.