Er dýrt að kaupa í matinn á Íslandi og er húsnæðismarkaðurinn ókleifari múr fyrir ungt fólk hér á landi en annars staðar. Hagfræðingurinn Konráð S. Guðjónsson verður knúinn svara um það í Spursmálum.
Hann hefur að undanförnu fjallað mikið um matvælaverð á Íslandi og hvernig markaðurinn hér á landi er í samanburði við nágrannaríkin. Í Spursmálum í dag hyggst hann einnig birta áhugaverðan samanburð á fasteignamarkaðnum á Íslandi og í Danmörku.
Í fréttum vikunnar er rætt við íþróttafréttamanninn Eddu Sif Pálsdóttur sem staðið hefur í ströngu meðan á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu hefur staðið og Jón Kristin Einarsson sagnfræðing sem þessa dagana fræðir íslensku þjóðina um sögu lands og þjóðar. Það gerir hann á nýstárlegan hátt í samtölum við helstu fræðimenn landsins á þessu sviði.
Þau munu þó ekki aðeins ræða HM og sagnfræði heldur einnig rýna í aðrar stórar fréttir vikunnar.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Ritstjórn Morgunblaðsins. Innehållet i podden är skapat av Ritstjórn Morgunblaðsins och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.