Í Spursmálum vikunnar fara þingmennirnir Jón Gnarr og Snorri Másson yfir lok þingvetrarins og takast á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar greinir þá á um hvort verið sé að „kíkja í pakkann“ eða veita stjórnvöldum opið umboð til að sækja um aðild.
Þá er rætt um Þingvelli, vel heppnaða tónleika Kaleo og þjóðargrafreitinn þar sem hugsanleg rannsókn á beinum Jónasar Hallgrímssonar vekur spurningar um sögu, virðingu og helgi.
Í lok þáttarins ræðir Sævar Þór Sveinsson, sérfræðingur í fjármálum íþrótta og maðurinn á bak við Utanvallar.is, um gríðarlegt umfang heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, tekjur FIFA, hækkandi miðaverð og hvað HM-sæti hefði þýtt fjárhagslega fyrir íslenska knattspyrnu.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Ritstjórn Morgunblaðsins. Innehållet i podden är skapat av Ritstjórn Morgunblaðsins och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.