Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum

Í áttunda þætti RÚS er viðmælandi Gunnars Þorra, Árni Þór Sigurðsson sendiherra Íslands í Rússlandi. Guðni Tómasson veitti aðstoð við dagskrárgerð og samsetningu.

Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.

Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.