Viðmælandi Gunnars Þorra Péturssonar í sjöunda þætti RÚS er Freyja Eilíf sem segir frá þýðingum sínum úr rússnesku og dvöl sinni í Rússlandi sem skiptinemi. Lesari ásamt Gunnari Þorra Péturssyni umsjónarmanni er Anita Briem.

Guðni Tómasson veitti aðstoð við dagskrárgerð og samsetningu.

Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum

Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.

Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.