Super Bowl eða Ofurskálin, stærsti íþróttaviðburður Bandaríkjanna, er í kvöld í Santa Clara í Kaliforníu. New England Patriots og Seattle Seahawks spila til úrslita um NFL-titilinn í amerískum fótbolta. Fanney Birna Jónsdóttir og Andri Ólafsson fræða okkur um þennan viðburð, hvað einkennir liðin sem mætast og hvernig leik má eiga von á.

Hálfleikssýningin er fastur liður í þessum stóra leik og að þessu sinni treður upp hinn vinsæli Bad Bunny frá Puerto Rico. Hver er hann og af hverju fer hann í taugarnar á Donald Trump forseta Bandaríkjanna? Ingunn Lára Kristjándsdóttir segir okkur allt um Bad Bunny og hálfleikssýninguna.

Umsjón: Gunnlaugur Jónsson

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.