Eygló Fanndal er einn mest spennandi íþróttamaður sem við eigum. Hún varð evrópumeistari í ólympískum lyftingum í fyrra en nokkrum mánuðum síðar lenti hún í erfiðum bakmeiðslum sem hún er enn að glíma við. Við rifjum upp ótrúlega sögu hennar, hvernig hún byrjaði að æfa lyftingar og hvað verður til þess að hún verður afrekskona á heimsmælikvarða í sinni íþróttagrein.

Við fáum einnig innsýn í Afreksmiðstöð Íslands sem er ný af nálinni og hvers vegna stofnun hennar er bylting fyrir afreksíþróttafólk hér á landi.

Umsjón: Gunnlaugur Jónsson

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.