Fanney Sigurðardóttir er fædd í merki fisksins. Hún titlar sig sem stjörnuspeking og miðill er í góðum samskiptum við aðila að ofan sem við hin munum líklega aldrei komast í kynni við. Einnig er hún menntaður viðskiptafræðingur, sem kemur sér vafalaust vel að notum í sjálfstæðum rekstri. Hún kom færandi hendi með útkrotað stjörnukort fyrir Hrefnu Líf sem er fædd í merki ljónsins og stiklaði þar á stóru. 

Fiskurinn og ljónið, vatnið og eldurinn. Algjörar andstæður en Fanney og Hrefna Líf eiga það sameiginlegt að vera báðar greindar með geðhvörf 2. 

Maníur, þunglyndi, sjálfsvígspælingar, æskan og dass af húmor einkennir þennan þátt. 

IG: fanney_stjornuspeki & hrefnalif

---------------------------------------------

Lag/texti & söngur: Hrefna Líf

Útsetning: Vignir Snær

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Hrefna Líf Ólafsdóttir. Innehållet i podden är skapat av Hrefna Líf Ólafsdóttir och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.