Flimtan og fáryrði tekur nú nýja stefnu og fjallar nú um íslenska bókmenntasögu í víðum skilningi. Gunnlaugur og Ármann ræða nú íslenskar hrollvekjur, einkum óvættina Selkollu og hið dularfulla Katanesdýr. Meðal annars er fjallað um merkingu stórra stafa og upphrópunarmerkja, martraðarlógík, miðdegisdjöfla, myndatökur lækna, munúðarþyrst vinnufólk og menningarlegt mikilvægi táninga í hryllingi. En eru álfar til? Hvað er líkt með hundi og nautgrip? Hví hafa hægrimenn tekið samsæriskenningar í fóstur? Hvað eiga Selkolla og Linda Blair sameiginlegt? Og hvers vegna hverfur sælgæti af heimilum fræðimanna?

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Gunnlaugur Bjarnason og Ármann Jakobsson. Innehållet i podden är skapat av Gunnlaugur Bjarnason og Ármann Jakobsson och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.