Þriðjudagur 23. júní
Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður
Óðinn Freyr Baldursson formaður Ungra Evrópusinna og Þórhildur Pálsdóttir stjórnarkona í Ungum gegn ESB útskýra fyrir Gunnari Smára hvers vegna þjóðaratkvæðagreiðslan í lok ágúst skiptir máli. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitamál í fréttum líðandi stundar. Utanvegaakstur, hvalveiðar, réttur fólks til að lifa af hitabylgjur og fleira verður til umræðu í spjalli Gísla við Björn Þorláks. Hvernig við munum og lærum er til umræðu í viðtali Ásdísar Olsen við dr. Unni Óttarsdóttur. Hún bendir á að stór hluti mannkyns hugsi fyrst og fremst í myndum fremur en orðum og að skólakerfið taki ekki nægilegt mið af því. Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður var í hópi Íslendinga sem hlutu fálkaorðu á þjóðhátíðadeginum. Hún fer yfir áherslur sínar í samtali við Björn Þorláks.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Gunnar Smári Egilsson. Innehållet i podden är skapat av Gunnar Smári Egilsson och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.