Rauða borðið
Avsnitt

Rauða borðið 22. júní - Starmer, hvalir, Kína, gervigreind, arkitekt og hjólastígar

Dela

Mánudagur 22. júní Starmer, hvalir, Kína, gervigreind, arkitekt og hjólastígar

Keir Starmer hefur sagt af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og þar með sem forsætisráðherra Breta. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur í London spáir í spilin í breskum stjórnmálum og innan Verkamannaflokksins í spjalli við Gunnar Smára. Valgerður Árnadóttir hvalavinur ræðir við Björn Þorláks um mótmæli gegn hvalveiðum og þá ekki síst nýjustu viðburði. Hún telur augljóst að veiðarnar stangist á við lög. Ragnar Baldursson kínafræðingur ræðir við Gunnar Smára um uppruna hugmyndarinnar um mörg kerfi innan sama ríkis og hvers vegna hún er mikilvæg í stefnu kínverska kommúnistaflokksins. Haukur Arnþórsson, doktor í stjórnsýslufræði, ræðir við Björn Þorláks um kosti og galla gervigreindar. Arnhildur Pálmadóttir arkitekt hefur verið heiðruð af hálfu Reykjavíkurborgar sem borgarlistamaður. Hún ræðir í samtali við Björn Þorláks hvernig henni hefur tekist að marka sérstök spor í byggingarlist. Magne Kvam er goðsögn og frumkvöðull í útivistarmenningu okkar Íslendinga sem fann það upp hjá sjálfum sér að leggja gönguskíðaspor og móta fjallahjólastíga fyrir almenning í sjálfboðavinnu. Ásdís ræðir við Magna um fjallahjólasportið.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Gunnar Smári Egilsson. Innehållet i podden är skapat av Gunnar Smári Egilsson och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.