Umfjallanir dagsins tengjast allar netinu sem við notum allan daginn og oft allt og mikið. Við notum það mikið, @ merkið gamla góða. Við hömrum það inn oft á dag en þekkjum kannski ekki öll söguna. Það var sýningargripur á nýlistasafninu í New York þegar við fjölluðum um það í október í fyrra. Það sem kannski færri vita er að merkið sjálft á sér nokkur þúsund ára sögu og hefur þar af leiðandi ekki aðeins verið notað í hinum stafræna heimi. Hallgrímur Indriðason segir okkur allt um sögu @ merkisins.

Svo eru það dekkri hliðar netsins, það er orð ársins 2025 hjá Oxford-orðabókinni, bræðibeita. Í desember fjölluðum við um þetta orð síðasta árs, bræðibeita eða rage bait á ensku. Orðið er notað yfir efni á netinu sem er ætlað að kveikja bræði eða reiði lesenda til þess að fá fólk til að smella á efnið. Notkun orðsis hafði þrefaldast síðustu tólf mánuði þegar það varð fyrir valinu sem orð ársins. Oddur Þórðarson fjallar um málið.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.