Hálfleiðara þekkja fæstir en þeir eru engu að síður í lífi okkar allra, nauðsynlegir í öllum helsta tæknibúnaði samtímans. Stærsti hluti þeirra er framleiddur í Taívan. Hvernig tókst Taívan að verða svona framarlega í framleiðslu á þessari tækninauðsyn? Og hvað þýðir þetta fyrir öryggi landsins? Eru meiri líkur á innrás vegna þessarar dýrmætu tæknikunnáttu? Eða virkar hún sem skjöldur? Dagný Hulda segir okkur allt um hálfleiðarana og stöðu Taívan.

Íbúar í borginni Kherson í Úkraínu fara síður út þegar veðrið er gott. En þegar það er þoka, rigning og snjór má búast við að sjá fólk á gangi úti við. Og ástæðan? Skyggnið er verra og þá eru minni líkur á að fólk sé sært eða drepið af drónum Rússlandshers. Kherson er í suðurhluta Úkraínu, við ána Dnipro. Hinum megin við ána eru rússneskir hermenn sem herja á borgarbúa alla daga með drónum. Á drónunum er myndavél og sprengiefni. Sá sem stýrir dróna sér því hvert hann stefnir og viljandi er þeim beint að fólki á gangi úti, jafnvel börnum, og að bílum á ferð. Borgarbúar kalla þetta „human safari“ eða mannaveiðar. Það sé eins og Rússarnir séu á eftir almennum borgurum til að særa þá eða drepa. Dagný Hulda segir frá.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.