Það gekk á ýmsu í úkraínskum stjórnmálum í sumar. Mótmæli brutust út þegar varnarmálaráðherranum, sem naut mikilla vinsælda, var vikið úr embætti. Síðsumars ruggaði hann bátnum allhressilega þegar hann sendi frá sér myndband þar sem hann lagði til að efnt yrði til kosninga. Bannað er að halda kosningar samkvæmt herlögum sem hafa gilt síðan Rússlandsher hóf allsherjarinnrás 2022. Þá hafa orðið vendingar í spillingarmáli sem virðist teygja sig alla leið inn á skrifstofu forseta landsins, Volodymyrs Zelenskýs. Dagný Hulda Erlendsdóttir fer yfir stöðuna í úkraínskum stjórnmálum.
Þau Birta og Bjarni Pétur fara svo yfir nokkrar af helstu fréttum sumarsins. Þar kemur meðal annars við sögu fatastíll Georgiu Meloni, tónlistarsmekkur Andy Brunham, frændsystkinin Margrét Þórhildur og Karl Gústaf og fleira.