Heimskviður
Avsnitt

Sumarheimskviður - Flókin talning og áttræðir rapparar

Dela

Nú fer sumrinu að ljúka og þetta er síðasti þáttur sumarsins. Við byrjum af fullum krafti næsta laugardag með splunknýjar Heimskviður, þar sem við ætlum að gera upp það helsta í fréttum sumarsins á erlendum vettvangi. Í þættinum í dag ætlum við að rifja upp umfjöllun okkar frá því í vor um eitt flóknasta og umfangsmesta manntal sögunnar. Indverjar eru langt komnir með að telja fjölmennustu þjóð heims. Núna í lok september lýkur fyrri áfanga þessa flókna verkefnis en því á ekki að ljúka fyrr en um mitt næsta ár. Svo fjöllum við líka um Harry Potter og höfund bókanna um galdrastrákinn J.K. Rowling, og að lokum áttræðu rapparana Pete og Bas.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.