Gullkastið
Avsnitt

Gullkastið – Leiðtogarnir Afgreiddu Everton

Dela

Trölla sigurmark fyrirliðans gegn Everton á 100.mínútu er nokkuð auðveldlega besta moment þessa tímabils og tryggði í leiðinni ákaflega  mikilvæg þrjú stig og 100% árangur Liverpool á þessum nýja heimavelli Everton. Borgin er svo sannarlega rauð eftir sem áður. Meistaradeildarsæti er því enn meira innan seilingar eftir helgina.

Það er hinsvegar ekki nóg að komast í Meistaradeildina það þarf spila eins og menn þar líka, Liverpool gerði það vissulega öllu betur á Anfield heldur en í París um daginn en niðurstaðan varð sú sama, 0-2 tap og samanlagt 0-4 gegn PSG sem er bara alls ekkert ásættanlegt hjá Liverpool. Tvö vonbrigðatímabil í röð í Meistaradeildinni og klárlega eitthvað sem félagið þarf að stefna á að laga strax í sumar.

Allar fréttir frá klúbbnum eru líka á þá leið að félagið þurfi að láta taka til sín á leikmannamarkaðnum enda stór skörð sem þarf að fylla og ljóst í vetur að stórar holur eru í hópnum fyrir. Skoðum aðeins þann markað líka.

Bræðslan 2026 – Gjafaleikur
Við framlengjum gjafaleikinn okkar með Bræðslunni í nokkra daga. Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár. Það er koluppselt á hátíðina og því um að gera að freista gæfunnar að vinna miða. Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu á Facebook síðu Kop.is

69dcce63cc504ca0a4af06ab_5%20(1).png

Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi og SSteinn

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Kop.is. Innehållet i podden är skapat av Kop.is och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.