Einvígið gegn PSG er í brennidepli og ljóst að Liverpool er í gríðarlegri brekku núna þegar einvígið er hálfnað eftir vond úrslit og enn verri frammistöðu í París. Ef það er eitt lið sögulega sem getur snúið svona stöðu þá er það að sjálfsögðu Liverpool þannig að höldum ennþá aðeins í vonina.

Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er hinsvegar ennþá möguleiki eftir nokkuð góða helgi í ensku deildinni. Chelsea og Aston Villa töpuðu stigum á meðan Liverpool vann góðan sigur á Fulham. Spáum aðeins í stöðuna í deildinni almennt enda áhugaverð staða á flestum vígsstöðvum.

Bræðslan 2026 – Gjafaleikur
Áskell Heiðar Bræðslustjóri var með okkur að þessu sinni en þeir bræður eru einmitt að fara hefja sölu miða á Bræðsluna 2026 og kynntu byrjunarliðið á Bræðslunni í dag. Sjá nánar hér
Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og af þessu tilefni hlöðum við í gjafaleik og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár.

Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu eða þessa færslu á Facebook síðu Kop.is og hafa netfang með.

69dcce63cc504ca0a4af06ab_5%20(1).png

Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi og Áskell Heiðar

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Kop.is. Innehållet i podden är skapat av Kop.is och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.