Það eru nokkrar blikur á lofti í efnahagsmálum og flest bendir til þess að verðbólga, sem mældist 5,1% í síðustu mælingu, verði ekki komin undir 4,95% í haust en það var viðmið sem var sett í kjarasamningana í hitteðfyrra. Samningarnir gilda út janúar 2028 og tvisvar á þeim tíma skal leggja formlegt mat á hvort forsendur haldi.
Í fyrsta sinn í sögu Danmerkur eru konur í meirihluta ríkisstjórnar. Ráðherraskipan nýrrar ríkisstjórnar var kynnt í morgun.
Mette Frederiksen verður áfram forsætisráðherra og Lars Løkke Rasmussen situr áfram í stóli utanríkisráðherra. Ráðherrarnir eru tuttugu og einn, þar af ellefu konur.