Spegillinn
Avsnitt

Geðheilsa Íslendingar, ný stjórn í Danmörku og símabann og boð í Svíþjóð

Dela

Ný og viðamikil fjölþjóðleg rannsókn sýnir að þess að um 1,2 milljarðar karla, kvenna og barna séu með geðsjúkdóma eða geðraskanir af einhverju tagi nær tvöfalt fleiri en 1990. Geðræn vandamál eru algengari meðal kvenna en karla og þau leggist þungt á ungmenni. Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir ekkert af þessu koma á óvart og ríma ágætlega við þróunina hér.

Það tók næstum sjötíu daga að mynda nýja ríkisstjórn eftir kosningar í Danmörku og Mette Frederiksen, leiðtoga jafnaðarmanna og sitjandi forsætisráðherra, tókst það eftir töluvert þóf. Hún gæti orðið þaulsetnasti forsætisráðherra Dana frá því í seinna stríði.

Lýðheilsustofnun Svíþjóðar hefur gefið út nýjar leiðbeiningar til foreldra um símanotkun og skjátíma barna. Símar verða bannaðir í skólum þar í haust og fleiri lönd íhuga að setja sambærilegar reglur.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.