Spegillinn
Avsnitt

Um stýrivaxtahækkun Seðlabankans

Dela

Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í morgun hækkun stýrivaxta úr 7.75 prósentum í átta prósent. Það er ekki hægt að segja að þetta hafi komið á óvart, miðað við þróun verðbólgu og fleiri þátta, en engu að síður voru uppi ákveðnar væntingar um að vextirnir héldust óbreyttir.

Verðbólgan er það sem talað er mest um í tilkynningu Peningastefnunefndar bankans í dag. Hún hefur verið yfir 5% það sem af er ári og mældist 5,3% í júlí. Samkvæmt nýbirtri spá bankans er talið að hún aukist enn frekar á næstu mánuðum en hjaðni tiltölulega hratt þegar kemur fram á næsta ár. Verðbólguvæntingar eru þó enn of háar, segir í tilkynningunni, og undirliggjandi verðbólga of mikil.

Rætt er við Róbert Farestveit, aðalhagfræðing Alþýðusambands Íslands og Sigurð Hannesson, hagfræðing og framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins um ákvörðun bankans og rökstuðning hennar.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.