Spegillinn
Avsnitt

Óhagstæður viðskiptajöfnuður, erfitt að bóka tíma hjá heilsugæslunni og gervigreindin bókar í ræktina

Dela

Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 441,9 milljarða króna sem er 63 milljörðum króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr. Ævar Örn Jósepsson veltir því fyrir sér með Katrínu Ólafsdóttur, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík hvað það þýðir.

Mörgum hefur reynst erfitt að bóka tíma hjá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu því fólki sem hringir er vísað á vefinn en þar segir að eigi að hringja.

Í Ástralíu tók gervigreindaraðstoðarmaður sig til og kom sínum manni í alla eftirsóttustu tíma í ræktinni og henti öðrum út. . Þarna ákvað gervigreind að gera eitthvað sem enginn bað um, velti ekkert fyrir sér áhrifum á aðra og annað, hvort aðgerðirnar væru eðlilegar, réttmætar, löglegar – eða einu sinni í samræmi við verkefnið. Ingólfur Bjarni SIgfússon sagði frá.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.