Skipaumferð um Hormússund lagðist nánast af eftir að Íranar réðust á gámaskip sem siglt var um sundið á laugardag, undir kýpverskum fána. Íranar sögðu árásina á skipið hafa verið fyllilega lögmæta, þar sem stjórnendur þess hefðu ekki fylgt þeirri einu siglingaleið sem þeir heimila. Bandaríkjamenn árásina hins vegar svo gróft brot á gildandi vopnahléssamkomulagi, að þeir hófu árásir að nýju, af jafnvel enn meiri þunga en áður en hlé var gert á þeim fyrir tæpum mánuði með sameiginlegri viljayfirlýsingu og Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stríðinu væri í raun lokið. Magnús Þorkell Bernharðsson er prófessor í sögu Miðausturlanda. Hann segir það ekki koma á óvart að vopnahléið hafi farið út um þúfur. Það hafi verið á sandi byggt og til þess eins gert að vinna tíma. Hann telur ólíklegt að önnur Persaflóaríki láti draga sig inn í stríðið og að allsherjarstríð brjótist út í Miðausturlöndum.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.