Alþjóðasamtökin Transparency International afhentu héraðssaksóknara í dag skaðabótakröfur ríflega eitt þúsund Namibíumanna sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna meintra mútubrota og spillingar Samherja í Namibíu. Transparency samtökin hafa lengi hafi barist fyrir því að fórnarlömb spillingar í alþjóðaviðskiptum fái áheyrn og skaða sinn metinn. Samherjamálið hafi haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir fjölda fólks og fjölskyldur þeirra. Undir það taka fyrrum sjómenn á togurum Samherja.