Eftir rétta viku rennur út sá frestur sem aðilar atvinnulífsins hafa til að ákveða hvort hin svonefndi stöðugleikasamningur Samtaka atvinnulífsins og margra stærstu stéttarfélaga landsins fái að standa, þrátt fyrir að verðlagsforsendur hans séu brostnar. Verðlagsforsendur samninganna eru þær að 12 mánaða verðbólga mælist ekki yfir 4,7 prósent í ágúst á þessu ári. Hún hefur verið yfir fimm prósentum allt þetta ár og mælist nú rétt undir sex prósentum.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðaði í dag tillögu að sameiginlegri yfirlýsingu allra hagsmunaaðila, um aðgerðir til að ná niður verðbólgu og tryggja að samningar haldi. Þessa tillögu hyggst hún leggja fram á ríkisstjórnarfundi á morgun.
Ævar Örn Jósepsson ræddi við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, og Finnbjörn Hermannsson, formann ASÍ, um hvað þurfi að vera í þessari tillögu til að þetta markmið forsætisráðherra náist.
Í vikunni hafa verið opnir fundir í eftirlits- og stjórnskipunarnefnd norska Stórþingsins þar sem fjöldi ráðamanna hefur mætt fyrir nefndina til að svara fyrir peningastreymi, venjur og menningu í utanríkisráðuneytinu. Hvort kunningskapur og óformleg tengslanet ráði þar miklu og Jeffrey Epstein kemur líka við sögu. Kveikjan er hvort fjárstreymi frá norska utanríkisráðuneytinu til hugveitu í New York sem stjórnað var Terje Röd-Larsen hafi verið óeðlilega mikið. Anna Kristín Jónsdóttir kynnti sér málið, sem gæti jafnvel leitt af sér bresti í sjálfsmynd norsku þjóðarinnar.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred.