Spegillinn
Avsnitt

Bókun 35 og málshöfðun ESA gegn íslenska ríkinu, tómar íbúðir í Hafnarfirði

Dela

Hin margumtalaða Bókun 35 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið er orðin að dómsmáli, eftir að ESA, eftirlitsstofnun EFTA, tilkynnti í morgun að stofnunin hefði vísað þessu máli til EFTA dómsstólsins. ESA hefur um langt skeið krafist þess að bókun 35 yrði innleidd í íslenskt lagaumhverfi, en málið er umdeilt; frumvarp um bókunina hefur í fjórgang verið lagt fram á Alþingi - nu síðast fyrir nokkrum dögum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sem var þá utanríksráðherra Sjálfstæðisflokks lagði fyrst fram frumvarp um hana vorið 2023 en það kom aldrei til annarar umræðu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur tvisvar áður lagt fram frumvarp um bókun 35 og mælir væntanlega fyrir því fjórða sinni í byrjun næstu viku.

Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi við Árna Pál Árnason, einn þriggja stjórnarmanna í ESA um ákvörðun stofnunarinnar um málsókn og tímasetningu hennar, og Ævar Örn Jósepsson ræðir við Gunnar Þór Pétursson lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík um málsóknina og bókunina sjálfa.

Eins og fram hefur komið í Speglinum ríkir mikið ójafnvægi á byggingamarkaði. Í nýlegri skýrslu HMS kom fram að á landinu eru um 1.900 íbúðir sem eru fullbúnar en hafa ekki selst og standa tómar.

Margar þeirra hafa staðið tómar í meira en eitt ár - og slíkar íbúðir eru hvergi fleiri en í Hafnarfirði, eða 213. Rúnar Pálmason ræðir þessa óvenjulegu stöðu við Orra Björnsson, formann bæjarráðs Hafnarfjarðar.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.