Spegillinn
Avsnitt

Sprenging í net- og símaglæpum

Dela

Óhætt er að segja að sannkölluð sprenging hafi orðið á sviði net- og símglæpa af öllu tagi, á allra síðustu árum. Skipulögð, fjölþjóðleg glæpasamtök hafa komið sér upp stærðarinnar úthringi- og tölvuverum, sem gera ekki annað en að reyna að svíkja fé af fólki alstaðar í heiminum allan daginn alla daga allan ársins hring með hinum fjölbreytilegustu aðferðum. Og sækist það giska vel. Raktar eru sláandi niðurstöður nýrrar skýrslu SÞ um umfang net- og símglæpa í Austur- og Suðaustur Asíu, Ástralíu og Nýja Sjálandi og rætt við Agnesi Ósk Marzellíusardóttur lögreglufulltrúa um stöðu mála hér á landi.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.