Orkumálaráðherrar Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu skrifuðu í gærkvöld undir tvo samninga um kjarnorkumál, um samvinnu ríkjanna um nýtingu Sáda á kjarnorku til orkuframleiðslu og eftirliti með henni
Samningurinn er til þrjátíu ára og er ætlað að uppfylla „orkuþörf“ olíuveldisins Sádi-Arabíu, samkvæmt tilkynningu bandaríska orkumálaráðherrans, Chris Wright, en í langtíma efnahagsáætlun Sáda er gert ráð fyrir töluverðri raforkuframleiðslu með kjarnorku svo þeir geti aukið olíuútflutning að sama skapi.
Margir hafa orðið til að gagnrýna samninginn, og enn virðist ýmislegt á reiki um hvað í honum felst. Spegillinn fékk Guðmund Hálfdánarson prófessor emeritus til að reifa það helsta sem þó er vitað.