Spegillinn
Avsnitt

Sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB

Dela

Íslenskur sjávarútvegur, yfirráð Íslendinga yfir auðlindum hafsins í kringum Ísland og nýtingu þeirra - þetta er jafnan eitt mesta hitamálið þegar tekist er á um kosti og galla hugsanlegrar Evrópusambandsaðildar og jafnvel aðildarviðræðna. Áhrif inngöngu í ESB á þessu sviði eru sögð frá því að vera óveruleg allt upp í algjört afsal á stjórn og nýtingarrétti íslenskra fiskistofna til framkvæmdastjórnar ESB í Brussel - og allt þar á milli.

En hver er sameiginleg stefna Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum? Spegillinn spurði Jóhann Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Hafrannsóknastofnunar að því. Hann tók þátt í að undirbúa sjávarútvegskaflann í aðildarumsókn Íslands á árunum 2009 til 2013, en þeim viðræðum var hætt áður en sá kafli var opnaður. Hlutverk Jóhanns var einkum að rýna í Evrópulöggjöfina og bera hana saman við þá íslensku. Hann þekkir því vel til sjávarútvegsstefnu ESB.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.