Rafræn þjónustukerfi Reykjavíkurborgar lágu niðri í vikunni eftir að ráðist var á tölvukerfi borgarinnar. Lýst var óvissustigi almannavarna og viðbragðsáætlun þeirra og netöryggissveitarinnar CERTIS virkjuð til verndar ómissandi upplýsingainnviðum. Anna Kristín Jónsdóttir, ræddi við Runólf Þórhallsson, yfirlögregluþjón hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Margt bendir til þess að breytingar séu að verða á útbreiðslu íslensku sumargotssíldarinnar. Hluti stofnsins gengur í auknum mæli austur úr íslensku lögsögunni og blandast þar norsk-íslenska síldarstofninum. Ágúst Ólafsson ræddi við Sigurvin Bjarnason, líffræðing hjá Hafrannsóknastofnun.
Þing- og ríkisstjórakosningarnar í Bandaríkjunum þriðja nóvember þykja sögulegar fyrir margra hluta sakir. Leita áratugi aftur í tímann til að finna eitthvað í líkingu við þá útreið sem Repúblikanar fegnu í haust, jafnt í fulltrúadeildinni sem í öldungadeildinni. Mary Peltola varð í kosningum kjörin öldungadeildarþingmaður fyrir Alaska, sá fyrsti af frumbyggjaættum. Hún er einnig fyrsti öldungadeildarþingmaður Demókrata fyrir það ágæta ríki síðan 2008. Ævar Örn Jósepsson fjallaði um þessi sögulegu úrslit.