Bensín og dísilolía hækkaði áður en opinber gjöld lækkuðu um síðustu áramót og hið sama gerðist rétt áður en virðisaukaskattur var lækkaður tímabundið fyrsta maí. Samkeppniseftirlitið segir það standa upp á olíufélögin að útskýra þessar hækkanir betur og að sveiflur í heimsmarkaðsverði á olíu skili sér ekki eins hér og í flestum öðrum ríkjum. FÍB segir alvarlegast af öllu sé að álagningin hafi stóraukist hér og olíufélögin í raun svíni bara á neytendum. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.
Ný rannsókn Rótarinnar sýnir að 60 prósent af þeim um það bil þúsund manns sem búa eða hafa búið við heimilisleysi í Reykjavík leituðu á bráðamóttökur Landspítalans á fimm ára tímabili. Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Rótarinnar, segir þetta sýna glöggt, að brýnt sé að bæta aðgengi þessa fólks að lágþröskulds-úrræðum - sem myndi allt í senn bæta hag þess, létta á bráðamóttökunum og spara hinu opinbera stórfé. Ævar Örn Jósepsson talaði við Kristínu.