„Víðtæk og kerfisbundin dráp og misþyrmingar á börnum hafa verið framin á milli 23. október 2023 og 23. október 2025,“ sagði Srinivasan Muralidhar, formaður alþjóðlegrar rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda á hernumdu svæðunum í Palestínu. Nýjasta skýrsla nefndarinnar fjallar sérstaklega um stöðu barna á hernumdu svæðunum og niðurstaðan er blátt áfram hryllingur. Ævar Örn Jósepsson fjallar um málið.
Í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups þar sem spurt var um atkvæðagreiðsluna í lok sumars kom fram að mjótt er á munum milli þeirra sem hallast að því að segja já og þeirra sem ætla að segja nei.
Heldur fleiri segjast öruggir um jáið eða 39% en 35% segjast örugglega munu segja nei. Könnunin var gerð 12. til 24. júní. 26% eru ekki alveg afdráttarlaus en 13% segjast líklega munu segja já og 13% eru á því að líklega verði neiið ofan á. Það eru væntanlega þessi 26%, sem eru ekki tilbúin til að segjast örugglega ætla að kjósa svona eða hinsegin, sem barist er um í sumar. En hvar sleppir upplýsingum og áróðurinn tekur við? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands.