Íslenskar löggæslustofnanir á láði og legi hafa haft í nógu að snúast síðustu sólarhringa vegna aðgerða sem tengjast umdeildu dýrahaldi og dýraveiðum. Hér er vísað til innbrots óþekktra aðila í síðasta minkabú landsins annars vegar, Dalsbú í Mosfellsdal, og aðgerðir félaga í Paul Watson-samtökunum gegn hvalveiðiskipum Hvals hf. hins vegar.
Rétt er að undirstrika að ekki er vitað hver það eru sem brutust inn í minkabúið, en leiddar hafa verið að því líkur að þar sé fólk á ferð sem telur sig berjast fyrir velferð dýra. En hvort sem svo er eða ekki, þá er ljóst að íslensk dýra- og náttúruverndarsamtök eru ekki par sátt við aðfarirnar. Þannig hafa stjórnir Landverndar, Náttúruverndarsamtaka Íslands og Samtaka um dýravelferð á Íslandi allar séð ástæðu til að senda frá sér yfirlýsingar þar sem innbrotið í minkabúið er fordæmt, og það gerði stjórn Dýraverndarsambands Íslands líka.
Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambandsins, segir aðfarir á borð við þessar ekki vera baráttumálum dýraverndarsinna til framdráttar, heldur þvert á móti.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason