Spegillinn
Avsnitt

Minkar á Íslandi - lausir og villtir

Dela

Hundruðum og jafnvel þúsundum minka var sleppt úr búrum sínum á síðasta minkabúi landsins, Dalsbúi í Mosfellsdal, á miðvikudag og einhver hundruð hið minnsta sluppu út úr húsi. Svo virðist sem fæstir þeirra hafi komist út fyrir öryggisgirðingu sem umlykur búið, en fregnir hafa þó borist af dýrum utan hennar. Eldisminkar eru um margt frábrugðnir villtu minkunum, sem þó eru allir afkomendur fyrri eldisminka. En hver er munurinn og hvað þarf fólk að hafa í huga, gangi það fram á mink á kvöldrölti sínu? Spegillinn bar það undir Róbert Arnar Stefánsson, forstöðumann Náttúrustofu Vesturlands og sérfræðing í minkum, atferli þeirra og afkomu.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.