Á fundi Seðlabankans í morgun, þegar sagt var frá ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%, var ítarlega fjallað um launaþróun hér á landi og hún borin saman við launaþróun erlendis. Þar kom fram að bæði nafnlaun og raunlaun hafa hækkað mun meira hér en til dæmis á öðrum Norðurlöndum. Launakostnaður á hverja unna stund er jafnframt sá mesti í Evrópu ef launatengd gjöld eru tekin með. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, lagði mikla áherslu á að ekki væru forsendur til að hækka laun hér frekar. Ekki eru allir sammála honum um það. Rúnar Pálmason tók saman.
Á milli 250 og 500 þúsund manns, fyrst og fremst menntskælingar og stuðningsfólk þeirra og þá ekki síst foreldrar þeirra og háskólastúdentar, mótmæltu víða um Frakkland í gær og kröfðust betri aðbúnaðar í framhaldsskólum. Þetta voru fjölmennustu mótmælin frá því að ungmenni byrjuðu að loka aðgangi að menntaskólum um miðjan september. Lokuðu skólarnir skipta nú hundruðum. Og það sér ekki fyrir endann á þessum fjölmennu mótmælum, sem hófust sem stuðningsaðgerð við kennara í einum skóla en eru löngu farin að teygja sig langt út fyrir skólakerfið. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Torfa Túliníus prófessor og sérfræðing í frönskum þjóð- og stjórnmálum.