Spegillinn
Avsnitt

Gengi krónunnar, Marco Rubio, skortur á íslenskum námsgögnum

Dela

Gengi íslensku krónunnar, sem var sterkt fyrir, hefur styrkst enn meira frá því í sumar. Frá áramótum nemur styrkingin um fjórum komma sjö prósentum og meira en helmingurinn hefur komið fram síðan í júlí. Ein evra kostaði rúmlega 147 krónur um áramótin en stendur nú í 137 krónum - er sem sagt um 7 prósentum ódýrari - en hafa verður í huga að evran hefur almennt gefið eftir gagnvart öðrum gjaldmiðlum - stórum og smáum.

Heimsókn Marcos Rubios utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands staðfestir náin og góð tengsl ríkjanna að dómi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem var á sameiginlegum blaðamannafundi með kollega sínum í Safnahúsinu í morgun. Rubio sagði að það sýndi sig enn og aftur að landafræði skipti máli.

Frumvarp sem átti að bregðast við lakri stöðu námsgagna á Íslandi, og hefur í fjórgang verið sett á þingmálaskrá, verður ekki tekið fyrir á þessu þingi. Tveir fyrrverandi ráðherrar menntamála úr jafnmörgum ríkisstjórnum reyndu að fá frumvarpið samþykkt, en höfðu ekki erindi sem erfiði.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.