Íslenskur landbúnaður stendur á krossgötum, segir í skýrslu Bændasamtakanna um mögulega aðild að Evrópusambandinu. Bændur hafa boðað aukabúnaðarþing 14. ágúst og þar á að ræða og álykta um þessi mál. Í skýrslunni sem kynnt var í morgun er á um 130 síðum og í átta köflum farið yfir hvort í ESB-aðild fælist fyrst og fremst tæknileg breyting eða kerfisbreyting fyrir íslenskan landbúnað og sjónum beint að ákvörðunarvaldi, stuðningskerfi, markaðsvernd, heilbrigði búfjár og sérstökum framleiðsluskilyrðum. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Sigurbjörgu Ottesen, formann milliþinganefndar Bandastamtakanna, en nefndinni var falið að greina áhrif mögulegrar ESB-aðildar og aðildarviðræðna á íslenskan landbúnað.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.