Hafrannsóknastofnun vill friðlýsa tæplega 33.000 ferkílómetra af landgrunninu suður af Íslandi. Þar er að finna hluta af helstu kóralrifum við Ísland sem togveiðar hafa skaðað í gegnum árin. Steinunn Hilma Ólafsdóttir, sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir einstakt landslag þarna á hafsbotninum sem fóstrar fjölbreytt lífríki og fjölbreytt búsvæði, kóralla, svampa og fleira. Friðlýsing þýðir veiðibann og allt lífríki sem þrífst þar á hafsbotni fengi algera friðun.
Þeir sem ætla í bíltúr í góða veðrinu, sem spáð er víða um helgina, þurfa að hafa varann á sér ef þeir ætla að stoppa einhvers staðar. Aldrei hefur verið rukkað fyrir bílastæði jafnvíða og í ár. Samkvæmt samantekt Félags íslenskra bifreiðaeigenda frá í maí, rukkaði Parka fyrir notkun á 18 bílastæðum einkaaðila í Reykjavík í fyrra, en nú 24. GreenParking rukkaði fyrir 15 stæði, tveimur árum áður voru þau sjö. Í nóvember var rukkað fyrir bílastæði á 43 ferðamannastöðum víða um land, í maí voru þau orðin 54, það er 25 prósenta aukning.
Tónlistarbolir og annar varningur sem merktur er hljómsveitum og listamönnum hefur aldrei verið mikilvægari en nú, til að mæta auknum kostnaði við tónleikahald. Þetta mátti meðal annars sjá fyrir stórtónleika Bubba Morthens um síðustu helgi, þegar opnaður var sérstakur vefur með alls konar varningi merktum honum. Varningsborðin eru líka ómissandi á tónlistarhátíðum og þar flykkjst tónleikagestir að og skoða boli, derhúfur, merki til að sauma á boli og annað slíkt, geisladiska, plötur og fleira.