Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan, leikkonan, leikstjórinn og athafnastjórinn Selma Björnsdóttir. Hún hefur auðvitað sungið fyrir þjóðina á flestum sviðum landsins, náði í annað sætið í Eurovision og nú síðast frumsýndi hún nýja gamansýningu þar sem hún, ásamt Björk Jakobsdóttur og Sölku Sól, þær kalla þetta sketsa og uppistandssýningu með frumsömdum lögum. Sýningin Bíddu bara - Þetta reddast! Og 25.október heldur hún tónleika í Salnum til heiðurs Dolly Parton, sem hún hefur haldið mikið upp á lengi. Selma sagði okkur í dag frá þessari sterku tengingu sem hún hefur við Dolly og kánrtítónlist. Við flökkuðum aðeins með henni aftur í tímann og fengum hana líka til að segja okkur frá starfi sínu sem athafnastjóri hjá Siðmennt, nýju sýningunni og tónleikunum í dag.

Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, en hún er stödd í Rómarborg og Selma Björns sat áfram með okkur þar sem Sigurlaug sagði okkur í beinu sambandi frá rjúkandi rómarmat.

Tónlist í þættinum í dag:

9 to 5 / Dolly Parton (Dolly Parton) I will Always Love You / Dolly Parton (Dolly Parton) Islands in the Stream / Dolly Parton og Kenny Rogers (Barry Gibb, Robin Gibb & Maurice Gibb)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.