Í maíbyrjun árið 1926 komu til landsins með Lagarfossi 42 kassar frá Þýskalandi. Farmurinn vó 11 tonn og innihélt nýtt orgel fyrir Fríkirkjuna í Reykjavík. Uppsett kostaði hljóðfærið 41.500 krónur, andvirði tveggja einbýlishúsa, og var langstærsta hljóðfæri landsins. Það var við hæfi enda Fríkirkjan stærsta samkomuhús á landinu á þeim tíma. Í tilefni af 100 ára afmæli þessa orgels stendur nú yfir tónleikaröð í Fríkirkjunni og við hittum Gunnar Gunnarsson núverandi organista við kirkjunna og skoðuðum með honum þetta merkilega hljóðfæri og fræddumst um sögu þess.
Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag var það Ingimar Eydal, en hann var einn þekktasti tónlistarmaður Norðurlands og hljómsveit hans er samofin tónlistarmenningunni þar og skóp einstaka stemningu meðal annars í Sjallanum á Akureyri. Jónatan rakti feril Ingimars eins og honum einum er lagið í þættinum.