Við fræddumst í dag um húmanískar eða veraldlegar útfarir eins og þær eru kallaðar hjá Siðmennt. Inga Auðbjörg K. Straumland er athafnastjóri hjá Siðmennt, við fengum hana til að segja okkur frá því hvernig þær ganga fyrir sig, hver er munurinn á þeim og kirkjulegum útförum í þættinum í dag.
VIRK stendur fyrir ráðstefnu á næstunni um það hvernig við nýtum tækifærin í forvörnum og starfsendurhæfingu til að koma í veg fyrir brottfall af vinnumarkaði og auðvelda endurkomu til vinnu. Virtir erlendir sérfræðingar í vinnusálfræði og vinnulæknisfræði flytja fyrirlestra en einnig mun Virk kynna nýtt úrræði sem nefnist Virk í starfi nýja þjónustuleið sem veitir einstaklingum á vinnumarkaði aðgang að fræðslu, ráðgjöf og þjónustu vegna erfiðleika sem hafa áhrif á starfsgetu þeirra. Markmiðið er að grípa snemma inn í ferlið, áður en vandinn verður of stór, og lágmarka þannig brottfall af vinnumarkaði. Vgdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK kom í þáttinn.
Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem sýnir að það séu tengsl á milli svokallaðra GLP-1 lyfja og naglaskemmda. En dæmi um GLP-1 lyf er t.d. Ozempic og svipuð lyf sem eru mikið notuð í dag til þess að létta sig. Edda útskýrði þetta fyrir okkur í dag og hvað þetta þýðir.
Tónlist í þættinum í dag:
María Ísabel / Hljómsveit Ingimars Eydal (erlent lag, texti Ásta Sigurðardóttir)
Sail On / Regína Ósk Óskarsdóttir (Jóhann Helgason) Kom út 2004
Boat Behind / Kings of Convenience (Erlend Øye og Eirik Glambek Bøe)
Nei sko / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)