Mannlegi þátturinn
Avsnitt

Guðmundur Andri föstudagsgestur og búðarferðanostalgía í matarspjallinu

Dela

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur. Hann hefur reynslu á mörgum sviðum, er fyrrverandi alþingismaður, var blaðamaður, ritstjóri og þáttagerðarmaður í útvarpi auk þess að vera söngvari og gítarleikari í hljómsveitinni Spaðar. Við fengum hann til að fara með okkur fram og aftur í tíma, í ræturnar í Vogunum og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og fengum hann til að segja okkur frá því hvað hann er að bralla þessa dagana.

Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Þar var nostalgían fyrirferðamikil og mislangar og misvelheppnaðar búðarferðir. Auk þess sem við hélldum áfram að blaða í Eldhúsbókinni góðu.

Tónlist í þættinum í dag:

Þú ert / Guðmundur Andri Thorsson með Tómasi R. Einarssyni og hljómsveit (Tómas R. Einarsson, texti Sigurður Guðmundsson) Haustvísa / Guðmundur Andri Thorsson (Guðmundur Andri Thorsson) Sól í sinni / Guðmundur Andri Thorsson (Guðmundur Andri Thorsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.