Mannlegi þátturinn
Avsnitt

Fjármál og ADHD, Stefán og ættfræðigrúsk og vísindaspjall um svefn kóngulóa

Dela

Hvert fóru peningarnir? Þessi spurning er yfirskrift erindis sem Valdís Hrönn Berg fjárhagsmarkþjálfi heldur á málþingi ADHD samtakanna á föstudaginn. Þar talar hún um margvíslegar áskoranir þess að vera með ADHD og hvernig það hefur áhrif á það hvernig við notum peninga og líður í kringum þá. Þar getur hvatvísi, gleymska, forðun og óöryggi spilað stórt hlutverk. Valdís kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessu.

Hverra manna ert þú? Þetta er spurning sem við Íslendingar spyrjum gjarnan hvert annað. Í dag er hægt að nýta gagnagrunna og skjalasöfn á netinu til að afla upplýsinga um sögu fjölskyldu þinnar allt að 200 ár aftur í tímann. Það er hægt að bera saman upplýsingar við lýsingar sagnfræðinga og annarra á lífskjörum og möguleikum almennings til að takast á við fátækt, barnadauða, vistarbönd, farsóttir og harðindi. „Þínu fólki tókst það – því annars værir þú ekki hér“, segir Stefán Halldórsson rekstrarhagfræðingur og félagsfræðingur en hann stendur fyrir námskeiði hjá Endurmenntun HÍ sem haldið verður í næstu viku. Stefán kom í þáttinn í dag og talaði um ættfræðigrúsk.

Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn á svefni kóngulóa. Þar kom ýmislegt í ljós sem rímar við það sem við sjáum hjá okkur, mannfólkinu, sem kom á óvart, en vekur vonir um að niðurstöðurnar geti svarað spurningum um svefn sem geta nýst okkur. Tónlist í þættinum: Sjaddi Mollo / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Magnús R. Einarsson) Hótel jörð / Egill Ólafsson (Heimir Sindrason, ljóð Tómas Guðmundsson) Ættin mín / Raggi Bjarna og Bjarni Ara (Bjarni Hafþór Helgason) Þú ert vagga mín haf / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Freymóður Jóhannsson (12.september), texti Reinhardt Reinhardtsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.