Brynjólfur Þór Guðmundsson frétta&þungarokksmaður spjallar við Joey DeMaio stofnanda og bassaleikara bandarísku þungarokksveitarinnar MANOWAR sem spilar á Íslandi í desember.
Við heyrum spjall við hljómsveitina 3ToOne sem byrjaði á plötu fyrir 30 árum sem var að koma út núna. 3toOne er súpergrúppa: Sigurður Gröndal, Ingólfur Guðjónsson sem voru í Rikshaw og Pláhnetunni á sínum tíma, og Egill Olafsson. Súpergrúppa sem spilaði meðal annars á UXA 1995 og tók síðan upp þessa plötu.
Við heyrum smá pistil frá London – Hulda G. Geirsdóttir sá Manic Street Preachers og Suede í London á föstudaginn og sendir póstkort.
Rokkland var á Agent Fresco á Iceland Airwaves á föstudagskvöld og ræddi við þá Tóta og Arnór Dan eftir tónleikana í ráðhúskjallaranum.
Og svo er það bandaríski útvarpsmaðurinn Kevin Cole sem er búinn að koma á Airwaves frá 2009 með félögum sínum á útvapsstöðinni KEXP sem hefur tekið upp meira en 300 hljómsveitir/listamenn á hátíðinni – mest á KEX hostel – og 150 milljónir hafa horft á það á Youtube. Í gær var frumsýnd í Bíó Paradís heimildarmynd um Kevin sem heitir Radioheart: The Drive and Times of DJ Kevin Cole. Kevin var viðstaddur og Rokkland ræddi við vin hans Benedikt Reynisson sem hefur verið einskonar hægri hönd Kevins á Íslandi öll árin.