Rokkland
Avsnitt

Drottningin af Færeyjum - þungarokk og Metallica

Dela

Rokkland vikunnar er tvískipt. Í Fyrri hlutanum er Eivør í aðalhlutverki, en hún sem var að senda frá sér plötunaTungl sem er plata númer 11 hélt útgafutónleika í Eldborg á föstudagskvöldið fyrir fullu húsi. Á föstudagsamorguninn heimsótti hún Rokkland í std. 12 í útvarpshúsið – sagði frá nýju plötunni sem hún segir að sé einskonar afturhvarf til Færeyja, og svo spilaði hún 2 lög af plötunni á kassagítar og eitt eldra.

Rokkland var á tónleikunum og við tölum um þá líka, en Eivør er á samningi hjá plötuútgáfunni Nuclear Blast sem einbeitir sér að þungarokki og Eivør sem er nýlega flutt heim til Færeyja eftir að hafa búð lengi í Kaupmannahöfn kemur reglulega fram á metal-hátíðum víða um heim.

Í seinni hlutanum er einmitt smá þungarokk þar sem við sögu koma Sólstafir – Led Zeppelin – Sólför Dimma – Deep Purple – Rainbow og Metallica, en daninn Flemming Rassmusen sem tók upp þrjár af bestu (að margra mati) plötum Metallica á níunda áratugnum er að koma til landsins og halda fyrirlestur um samstarfið við Metallica 5. Nóvember nk. Allt tengist.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.