Víðsjá
Avsnitt

Örn Alexander, Sjónarafl og Skriftamál einsetumannsins

Dela

Síðustu ár hefur á Listasafni Íslands verið unnið að metnaðarfullu fræðsluverkefni í myndlæsi undir yfirskriftinni Sjónarafl. Þar fá nemendur og áhugasamir spurningar og lykla sem opna dyr að heimi myndlistar fyrir alla að njóta. Ragnheiður Vignisdóttir, fræðslu- og útgáfustjóri Listasafns Íslands, upplýsir okkur nánar um verkefnið. Sölvi Halldórsson rýnir í sögufrægt verk eftir Sigurjón Friðriksson sem kom fyrst út árið 1929 og nefnist Skriftamál einsetumannsins. Að lokum lítum við inn í Kling & Bang, en þar opnar á morgun einkasýning Arnar Alexanders Ámundasonar sem nefnist því greinargóða nafni; Sýning sem verður kannski tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna. Þar tekst Örn á við umræðuna um gangverk listheimsins sem fer oftast fram í hálfhljóði.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.