EKKI AUMINGI
Avsnitt

S1E6 - "Þegar taugakerfin tengjast" - Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur

Dela

Hvað hefur ástin með endurhæfingu að gera?

Meira en maður myndi halda.

Í þessum þætti sest ég niður með sálfræðingnum og rithöfundinum Guðbrandi Árna Ísberg, höfundi bókanna Skömmin, Í nándinni og nýju bókarinnar Í augum þínum verð ég til – um ástina. Guðbrandur hefur í áratugi unnið með fólki í leit að betri tengslum, meiri nánd og sterkari sjálfsvirðingu.

Við ræðum ástina, sambönd, skömm og það sem gerist þegar lífið tekur óvænta beygju. Hvernig hefur sjálfsvirðið áhrif á samböndin okkar? Af hverju er svona erfitt að taka á móti hjálp þegar við þurfum mest á henni að halda? Og hvað gerist í ástarsambandi þegar annar aðilinn neyðist til að hægja á sér, fara í endurhæfingu eða sleppa tökunum á þeirri útgáfu af sér sem hann þekkti áður?

Þessi þáttur er í boði Lyfju, Nordaid sprey vítamínanna, Bati.app og San Pellegrino - TAKK 

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Eva Matta. Innehållet i podden är skapat av Eva Matta och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.